*Sandra Braveheart*

"Feisður fram á við, fortíðin er að baki"

17.09.2007 15:16:25 / sandruz

Dónafólk..

Ég hef mikið verið að pæla í því uppá síðkastið..
..þar sem ég er nú búin að vera vinna soldið við það að svara í síma!

Hvað fólk er hrikalega misjafnt..
..sumir eru bara fáránlega dónalegir!! Alveg ótrúlegt..
Af hverju??
Svona í alvöru.. að eyða orku sinni og bara að hafa það í sér að vera bara dónalegt og þakka ekki fyrir við bara einhvern sem það þekkir ekki neitt..
..æji, ég veit ekki sko!

Langaði bara svona aðeins að segja eitthvað um þetta..
..hrútleiðinlegt eflaust!!

Nóg um það..

Bara vinna og meiri vinna..
..svo er síðasti leikur núna á eftir, eftir 2 tíma réttara sagt!!
Jiii.. svo bara ekkert meira fyrr en bara, já.. ég veit ekki!

Váá, ég veit ekkert hvað ég á að segja..

Later..


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 10:17:36 / sandruz

Breytingar..

Jæja..

..slap in the face!! Nú er kominn tími á breytingar!!
Planið er að fara að blogga meira.. ætla að reyna að vera geðveikt djúp og svona, váá.. ég er alveg orðin spennt!
Djóók, ekki þið verða of spennt samt..

En já, málið er nú það að ég er farin að vinna.. hjá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu!!
Oft hef ég EKKERT að gera.. og hvað er þá betra en að blogga bara..

Síðan verður uppfærð, nýtt look og svona eitthvað skemmtilegt..
..vonandi er fólk að fýla það!!

En farin að breyta..

Later..


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 19:44:25 / sandruz

Jiii, eru þið að djodda?

Nááákvæmlega!!

Okei okei.. núna eru 3 mánuðir eða eitthvað síðan ég bloggaði!! Mikið asskoti er ég töff!!

Tyrkland fyrir 3 mánuðum var SNILLD!! OMG, þvílík snilld!!! ;)

Síðan er sumarið komið, seasonið byrjað og næstum hálfnað.. og maður er vinnandi!
..beilaði á skólanum!! Jájá, ég veit..
..svona er þetta!!

Sumarið hefur verið ágætt..
..ooog svo er þjóðhátíð eftir 2 vikur!! Úff.. það verður svo mikil snilld!!
Váá.. get ekki beðið..

..en veit heldur ekkert hvað ég á að segja meira!
Ætlaði bara að láta það líta út fyrir að ég væri á lífi..

"Sjáumst" eftir kannski 3 mánuði, aldrei að vita nema það verði fyrr..

Later..


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 01:55:39 / sandruz

Tyrkland beibí!!

Újeee..

..núna eru 7 og 1/2 tími í brottför!!
Já, þið heyrðuð rétt.. í brottför!! hehehe..
Er að fara til Tyrklands.. og það verður awesome!!!! :D:D

Bolti, sól, bolti, sól, bolti, sól og meiri bolti..
..úff, ég er að fíla þetta!8)

Hnéð er gott..
..spilaði heilan leik seinustu helgi, og allt saman bara mjög jákvætt held ég!!

Þarf að klára að pakka!!

Tyrkland bíður mín!!!

Later fólk..

..og já, gleðilega páska allir saman, hafið það gott! ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 00:41:46 / sandruz

Turkey lurkey.. :p

Vóó.. blogg númer 2 í þessum mánuði! ;)

Aaaaalllt að gerast!

Ég er byrjuð í smá bolta, það er æði.. reyndar var stoppuð smá af og á að byrja rólega, plús það lagðist ég í bælið eins og stór hluti þjóðarinnar! Það er ömurlegt..
..en svona fyrir utan það, þá er ég spræk!!

Núna er 14-15 dagar í Tyrkland..
..jáá, ég er að fara til Tyrklands í æfingaferð með Stjörnunum mínum, vááá.. það verður GEEEÐVEIKTT! ;)
10 daga ferð í sól og blíðu, spila á grasi og úfff.. sniiilldd!!
Ég get ekki beðið.. :D:D

En svo er það skólinn.. byrja í prófum 16 dögum eftir að ég kem heim frá Tyrklandi.. össs..
..það er bara að taka sig saman í andlitinu núna fram að ferð og læra!! Díí.. komin tími til að fara aðeins að læra!!

En það er víst kominn tími til þess að fara að sofa líka..

Later.. ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 09:51:51 / sandruz

Snickers.. nei ég meina það er kominn mars..

Jæja jæja.. nýr mánuður genginn í garð, þá kannski að minnsta kosti kominn tími á nýtt blogg!!

Núna er mánuður frá spegluninni og ég er farin að hlaupa, taka smá hraðaaukningar og smá innanfótarsendingar og svona.. aaallt að koma!!

Skólinn á fullu.. maður er að reyna að taka sig á þar!! Og já bara nóg að gera..

http://www.youtube.com/watch?v=1LILp1iyKVg

hehehe.. þið verðið að tékka þetta, manneskjan er bara í ruglinu!!
Finnst þetta freeekar fyndið!!

Æji veit ekkert hvað ég á að segja.. en betra blogg kemur fljótlega..

 Later..


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 14:25:07 / sandruz

Ha??

Hvað meinið þið fólk!!

Ég er sko fáránlega dugleg að blogga!! Það er eiginlega bara rugl!!
hehehe..

En jáá.. lífið gengur..
..hvernig það gengur, ég veit ekki!!

Kom í ljós að liðþófinn var rifinn í vinstra hnénu.. fór í speglun og jáá, er núna bara að vinna í því að ná mér góðri aftur, er jú farin að mega hjóla smá!
En það er varla til þess að tala um.. 10 mín í einu mjög rólega og engin mótstaða, eða eitthvað álíka!!
Össs..

..er að verða biluð, hef ekki farið í fótbolta í rúman mánuð!!!:klikk:
En svona er þetta..

Þetta fer samt vonandi að detta inn.. núna hefur óhollustan verið lögð á hilluna og allt sem henni fylgir!!
..komin tími til að maður komi sér í form og svona!!

En jáá.. Sandra ofur-bloggari er farin að læra!!

Laaater! ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 01:08:30 / sandruz

Til hamingju!!

Jájá, til hamingju Sandra!!
Þú hefur hér með verið kosinn einn lélegast og latasti bloggari Íslandssögunnar..
..og bloggsaga Íslands er nú ekkert svo löng og mikil!!

En jájá, nýtt ár, ný markmið, ný Sandra.. huh??
Ný Sandra??

Neeei djók! ;)

Allavegana.. mun núna reyna að fara að blogga hérna aðeins reglulegra og jú reynum nú að vera soldið frumleg hérna!!
Koma svoo..

Hey.. Gleðilegt nýtt ár fólk! ;*
..þessu má maður nú ekki gleyma!!

En já, hefur svo sem ekkert mikið drifið á mína daga..
..jújú jólin voru yndisleg, í faðmi fjölskyldunnar í sveitinni í mikilli leti!!
Prófin gengu næstum því öll.. féll í einu, en það er bara eitthvað sem maður lærir af og er í góðu lagi svo sem.. næ því bara aftur!
Boltinn kominn á fullt.. reyndar meiðsli núna, þar sem að ég gæti verið með rifinn liðþófa eða eitthvað annað.. en það kemur bara í ljós og maður bara krossar fingur fyrir því að þetta sé bara marblettur! 8|8)
Uuuu.. skólinn já líka byrjaður aftur þannig að!!
Jáá, lífið gengur bara svona sinn vanagang..
..djammið hefur því verið lagt á hilluna í óákveðin tíma, en ef til væri kvótakerfi í þessum málum þá held ég að ég gæti næst keypt kvóta árið 2016, en jája´svona er þetta! :)

Núna er ég búin að sýna smá lit..
..og held þetta sé gott í bili, eiginlega líka kominn tími til þess að koma sér að sofa!!

Later.. ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 05:29:43 / sandruz

Tilgangslausasta blogg í heimi..

Jáá.. það er nokkuð til í þessu..

..veit ekki alveg af hverju ég er að blogga núna!
En hins vegar veit ég af hverju ég er vakandi núna, ef þið tókuð ekki eftir því þá er kl 5:30 þegar þetta er skrifað!!
Hmm.. Jájá, ég er að læra undir próf!!
Eða að reyna það..

..er bara í ruglinu eins og venjulega!!

Eiginlega bara að drepa tímann  með því að gera eitthvað allt annað en að vera að læra..
..sé fram á það að ég sé að fara að klúðra þessu prófi algjörlega!!
En ætla þó ekki að gefa upp alla von..

Ætlaði bara að sýna fram á það að ég væri á lífi..
..og svo hef ég hugsað mér að taka mig á og uppfæra þetta blogg þegar ég er búin í prófum!
Fara yfir alla tengla, taka út eitthvað crap og setja inn nýja og svona..

Gaman að því..

En áfram að með lesturinn..
..stærðfræðigreining lengi lifi!! ;)8|

Töff..
..later!


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 18:14:26 / sandruz

Taka átta..

Úff.. reynum enn einu sinni!!
Ohh.. í gær, þá var ég búin að blogga OFUR-blogg, en neinei Sandra sauður ýtti á vitlausan takka og allt bara farið.. já töff, til hamingju!!

Ekki nóg með það.. heldur þá ákvað ég nú að reyna aftur.. komin með annað OFUR OFUR blogg, en neinei.. aftur ýtti Sandra sauður á vitlausan takk!!
Jáá.. ef ég á ekki að fá orðu fyrir þetta þá veit ég ekki hvað sko!!

En nóg um það.. það er semsagt komin tími til þess að blogga, svo mikið er víst!

Af mér er svo sem ekkert mikið að frétta.. kaflaskipti í lífii mínu núna.. styttist í próf og maður þarf víst að fara "að geta" vaknað á morgnanna til þess að læra..
..gaman að því!
Boltinn jújú farinn að rúlla aðeins og svona..

Flaskan hefur verði lögð á hilluna í bili.. ekki ófá skiptin sem hún hefur verið með í för í svaðilförum í miðbænum! 8)
hehe.. en nóg um það!

Ég verð að koma að einu hérna..
..oft hef ég verið hneyksluð og jájá, þessi umræða hefur komið margoft upp á meðal Íslendinga.. en það er jólaundirbúningurinn!
Áður var það þannig að maður var eitthvað að röfla yfir því að jólaskrautið var komið uppí lok nóvember og byrjun des.. en neinei, núna er það komið upp um miðjan OKTÓBER!!!
Hvað er að fólki.. MÁ ÞETTA BARA???!?!?!
Nei í aaaalvööru sko!

Alveg rugl sko..

En ætla að fara að gera eitthvað af viti..
..og jú enda þetta á myndum frá því seinasta laugardag (11.nóv), afmælið hennar Ernu okkar Birgis!! ;)

Ég og Dóra vinkona! :haha:

Nokkrir hressir hlunkar.. 8)

Klassa lið.. verðandi lyfjafræðingar! ;) (ég og Björk)

Endum þetta á Ernunni sem átti afmæli!:P


» 10 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 09:58:26 / sandruz

Þetta var ekkert djók..

Fólk, þið verðið að fara að taka mig soldið alvarlega!
Ég er ekkert að grínast.. það er bara OF gott að sofa, og ég get ekki vaknað á morgnanna!
Hvað gerir maður í því??

Reyndar náði ég að vakna í morgun og það var sko framför..
(nei mamma, þetta er bara allt djók.. er alltaf mætt 08:05 í skólann)8)

En jáá.. svo sem ekkert mikið að frétta af mér annars..
..skellti mér á ball seinustu helgi, og já í sumarbústað með útvöldum stjörnuhlunkum!! (hehe.. sumir komust samt ekki)
Það var bara snilld sko.. Á móti sól að spila á Sauðárkróki..´(já ég veit, ball á króknum.. úff)
En var semsagt ágætt...

En bara róleg helgi framundan.. (vonandi).. þó svo að það sé brjálaður lærdómur líka!! ..en farin að læra!

Later.. ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 15:10:09 / sandruz

Hjálp óskast!!

Jáá.. ég hér með auglýsi eftir einhverjum/einhverri/einhverju.. til þess að vekja mig á morgnanna?!!
Helst í sjálfboðavinnu en hver veit nema að maður geti jafnvel borgað með góðmennsku og skemmtileg heitum, jafnvel blíðu!! ;) (Nei mamma.. ég fer ekkert í svoleiðis rugl) ;) hehe..

En allavegana.. vantar sárlega aðstoð við það.. og svo er ekki verra ef þessum/þessari/þessu finnist gaman að þrífa og geti tekið íbúðina mín og Hörpu annað slagið í gegn! ;) (ekki það að það sé skítugt, alls ekki) 8)

Annars er það að frétta af mér að KSÍ-hófið er búið.. og váááá.. það var sjúkt gaman!!
Gerði þvílíkt met.. veit ekki hversu margfalt metið er sem ég setti frá því í fyrra.. (ekki það að það hafi verið eitthvað brjálað erfitt) ...en MET samt sem áður! :D

Svo er það bara lærdómur og meiri lærdómur serm er á dagskrá næstu mánuði.. og jú ekki má gleyma að æfingarnar eru byrjaðar aftur!!
Sweeeet.. ;) ..er að fíla það! :)

En jáá.. maður á víst ekki að vera eyða þessum dýrmæta tíma sínum í það að vera að blogga.. þannig að ég farin..

Later.. ;)


» 19 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 01:01:29 / sandruz

vúhú.. gott blogg!

Jiiii.. hvað er ég að gera vakandi svona seint??

Þetta gengur ekki..
..þarf að vakna í skólann á morgun kl 8, er ég að sjá það gerast!!

Jú, Sandra.. þú ert algjör hetja!!

Hehehe.. styttist í KSÍ, og maður getur ekki beðið!!
Ég fer að sjá í laugardaginn sko..

Heyrðu, stúlkan er búin að fara í ríkið í fyrsta skipti og borga sjálf.. öss..
..ég er orðin svoooo stór!! :D:D

En jæja, fínt að frétta af mér..
..snilldar helgi að baki, þar sem lítið var sofið og mikið dansað! :D

Svo tók auðvitað bara lærdómur við..

En þetta blogg er svo mikið rugl..

Eiginlega bara að blogga til að sýna að ég sé á lífi og eitthvað virk í lífinu.. hehe..

Later..


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 22:50:42 / sandruz

Datt í það..

Sorrý.. þetta gengur náttúrulega ekki!!

Össs.. ég skammast mín!!

En jáá.. ég er að blogga, loksins!
Málið er það að tölvan mín fór í eitthvað drasl.. og það þurfti að laga hana..
..jújú, þetta tekur allt sinn tíma!
Svo er ég auðvitað uppteknasta konan á jarðríki, eða svona næstum..

Komin í pillurnar og alltaf full..

...hehehe, Nei Mamma, ég er bara að grínast!

Er byrjuð í lyfjafræðinni og það er bara nóg að gera jáá.. lærdómur frá 8-22 eða eitthvað.. er þetta ekki heilsuspillandi, ég bara spyr??
Spurning að maður sulli saman einhverjum lyfjum og mixtúrum til að laga þetta..

En svo sem bara gott af mér að frétta..
..jújú, maður er búin að taka nokkur djömm, þrusugaman!!
Verður maður ekki að nýta tækifærin, svona þegar þau koma bara á færibandi..
..það myndi ég halda! :D

Er í sveitinni núna.. mmm.. sweeeet!
Siglufjörður klikkar ekki.. maður gerir ekkert!
hehehe.. mjög gott!! ;)

En váá.. þetta er orðið ágætt, veit heldur ekkert hvað ég er að segja hérna..
..skal fara vera duglegri að blogga svo í framtíðinni! (engin loforð samt)

Later.. ;)

..stór dagur á morgun! :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 00:43:17 / sandruz

Beiler hvað??

Við ætlum ekkert að ræða þetta sko..

..ég veit að tæknilega séð er kominn mánudagur, en hjá mér er sunnudagur og ég er að blogga!!
Þannig að.. FOKK OFF!!!!

Hehehe..

En jæja, mjög góð helgi að baki..
..bústaður, pottur, góður matur, smá öl og hlátur og svo má ekki gleyma BOB! ;)

En fréttir af mér eru ekkert miklar..
..byrja í HÍ á morgun (mánudag), í lyfjafræði! Komst inn þrátt fyrir að hafa sótt um alltof seint en málið var náttla að USA-ferðin klikkaði á síðustu stundu!!
..2 leikir eftir í deildinni, FH á miðvikudaginn og Breiðablik næsta sunnudag!! Össs..
..töpuðum 2-1 fyrir Val í undanúrslitum bikarsins, leikurinn sýndur í sjónvarpinu og allt!! Helvíti súrt að tapa.. en svona er þetta!!
..komst heim á Sigló í nokkra daga, úff.. SWEEEET!! :D
..og jáááá, má ekki gleyma því að ÞJÓÐHÁTÍÐ var SNILLD!!!
Er strax farin að plana Eyjar 2007, eru þið game????8)

En váá.. verð að fara að sofa, má nú ekki líta út fyrir að vera syfjuð á fyrsta skóladegi, eða er það nokkuð?

Later..


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9